Dramatíkin

Drama er fyrir dáldið tík,
sú dama er nú engri lík,
í Englalandi orðin er rík,
en auðmjúk í Reykjavík.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði í FÉLAGSVÍSINDADEILD Háskóla Íslands:

"Ég held að nýir tímar [svo!] í akademískum rannsóknum krefjist miklu nákvæmari tilvísana og meiri virðingar fyrir textum annarra en var á þessu fyrsta bindi míns verks [sem kom út árið 2003]. Ég lærði af þeim mistökum og breytti vinnubrögðum mínum í öðru og þriðja bindi."

http://hannesgi.blog.is/blog/hannesgi/entry/497064/ - "Viðtal í 24 stundum", birt 5.4.2008, kl. 16.53

Gagnfræðakver handa háskólanemum eftir Friðrik H(elga) Jónsson og Sigurð J(úlíus) Grétarsson, prófessora í FÉLAGSVÍSINDADEILD Háskóla Íslands, gefið út fjórum sinnum á árunum 1992 til 2007 og notað í allri háskólakennslu hérlendis:


"Í kverinu er að finna ýmislegt sem háskólakennarar ætlast til að stúdentar kunni, ýmislegt sem getur skipt sköpum í námi en er þó sjaldan beinlínis kennt. Fjallað er um námstækni og vinnubrögð í háskóla, skipulag og frágang námsritgerða, heimildaleit, tilvísunarreglur og heimildaskrár, orðanotkun, þýðingar á erlendu efni, uppsetningu taflna og fleira sem huga þarf að í rannsóknum og námi."

Gæsaglappa,
gerði skot,
þurs í þrot,
lappabrot,
hólmsins grjóta,
veggja ljóta,
krot,
nú tárin vot,
karli vísa á í kot,
eins og skot.

http://hehau.blog.is/album/Bloggmyndir/image/178072/

http://www.youtube.com/watch?v=jHPOzQzk9Qo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Góður!    Þú, ekki HHG.

Lára Hanna Einarsdóttir, 25.4.2008 kl. 10:43

2 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

iNNLITSKVITT OG GÓÐAR KVEÐJUR

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 25.4.2008 kl. 11:04

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ég get nú líka verið dáldið grimmur stundum, Lára mín Hanna. Svona eins og Úlfurinn í Rauðhettu litlu. Blink blink!

Hann Hannes tekur alltaf á sig stóran krók þegar hann mætir mér á götu. "Guð minn almáttugur! Þarna er hann Steini Briem!"

Gleðilegt sumar til Vetrardagsins fyrsta, 25. október, krúttið mitt!

Þorsteinn Briem, 25.4.2008 kl. 11:17

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sömuleiðis, Linda mín Linnet!Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir I love you too!!!

Þorsteinn Briem, 25.4.2008 kl. 11:21

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Óskar Þorkelsson, 25.4.2008 kl. 11:26

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Já, það er ekki tekið út með sitjandi sældinni að vera annálaður og úthrópaður gáfumaður. Samúðarkveðjur...

Greta Björg Úlfsdóttir, 25.4.2008 kl. 13:34

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Jamm, hann Hannes á alla mína samúð í þessu máli, Greta mín Björg.Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

En það væri náttúrlega gaman að vita hvernig það er að vera "úthrópaður gáfumaður". What is feels like.

Þorsteinn Briem, 25.4.2008 kl. 14:27

8 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Þú ættir kannski að skrifa eitt stykki ævisögu, Steini?

Greta Björg Úlfsdóttir, 25.4.2008 kl. 15:08

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ég er að skrifa ævisöguna hérna á blogginu, þannig að þetta er si svona ævibloggsaga, Greta mín Björg.Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Þorsteinn Briem, 25.4.2008 kl. 15:45

10 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Kannski er von til þess að þú verðir úthrópaður með því móti, ef vel tekst til við ævibloggsöguna, Steini minn Briem.

Greta Björg Úlfsdóttir, 25.4.2008 kl. 15:59

11 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

...því gáfumaður ertu auðvitað nú þegar, ekki satt?

Greta Björg Úlfsdóttir, 25.4.2008 kl. 16:01

12 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

...annálaður í þokkabót...

Greta Björg Úlfsdóttir, 25.4.2008 kl. 16:02

13 Smámynd: Þorsteinn Briem

Annálaður vitleysingur tíundaður í öllum annálum frá því í Tyrkjaráninu, Greta mín Björg.Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Sem var reyndar ekki Tyrkjarán en sannleikurinn er nú alltaf hornkerling í öllum annálum.

Þorsteinn Briem, 25.4.2008 kl. 16:14

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband