Fullnægingarfeik á Sumardaginn fyrsta

Það sýnir mjög fallegan hugsunarhátt hjá konum að feika fullnægingar og mér finnst að minnast ætti þeirra á Sumardaginn fyrsta, 17. júní, Sjómannadaginn og við jarðarfarir til dæmis.

- Það sýnir göfugt hjartalag Guðrúnar hversu oft hún gerði sér upp fullnægingar með öllum eiginmönnum sínum. En nú hefur hún loks öðlast hvíldina. Amen.

Feikaðar fullnægingar geta hins vegar verið varasamar þegar um skyndikynni er að ræða.

- Ég er að fá það! Ég er að fá þaaaað, Guðmunduuur!!!

- Ég heiti ekki Guðmundur! Ég heiti Þröstur!!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gulli litli

Ég heiti Gulli litli! Er þetta bara feik? Ég hélt í alvöru að ég væri góður í þessu! Þú ert að ljúga er það ekki? Bara pínu, gerðu það? oh djö...

Gulli litli, 24.4.2008 kl. 13:08

2 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Sjómannadagurinn er tilvalinn,........... Gleðilegt sumar Þröstur minn.

Guðni Már Henningsson, 24.4.2008 kl. 13:21

3 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Fullnægingarfeik á Fullveldisdaginn

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 24.4.2008 kl. 13:26

4 Smámynd: Ómar Ingi

Sumarið

Ómar Ingi, 24.4.2008 kl. 13:58

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Gleðilegt sumar... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 24.4.2008 kl. 14:05

6 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Þarf maður nú loksins að vera heiðarlegur úffff Gleðilegt sumar !

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 24.4.2008 kl. 14:45

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Tack detsamma! Gleðilegt sumar, Þrestir og Lóur, og allt bíbí þar á milli! Líka Bíbí, vinur minn, dómastrumpur!

Best að skreppa í Bónus og kaupa eitthvað ódýrt með kaffinu. Maður verður að spara. Davíð frændi er búinn að hækka vextina aftur og segir að það sé tóm vitleysa og argasta bruðl að kaupa snúða með glassúr. Hann hefur því alltaf tvo með sér heim daglega úr mötuneytinu í Seðlabankanum í boði hússins. Líka úr heimboðum. Ég þekki það nú.

Þorsteinn Briem, 24.4.2008 kl. 15:10

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

Davíð frændi var að hringja í mig rétt í þessu og sagði að þetta væri bara vitleysa með snúðana og glassúrinn. Þarna ætti bara að standa "daglega" en ekki "alltaf". Sorrí, Davíð minn, ég ætlaði ekki að særa þig, elsku kallinn minn.

Þorsteinn Briem, 24.4.2008 kl. 16:14

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband